Yfir 100 lið hafa skráð sig til keppni á Samkaupsmótinu
Samkaupsmótið fer fram um næstu helgi í Keflavík og Njarðvík. Falur Harðarson er mótsstjóri, líkt og undanfarin ár, og í samtali við Heimasíðuna sagði hann að enn eitt árið stefndi í metþátttöku. Ekki væri alveg ljóst hve margir þátttakendur yrðu en liðin væru orðin 101 og líklega myndu yfir 700 krakkar mæta á mótið, fyrir utan þjálfara, liðsstjóra og foreldra. Ljóst er að hátið verður í Reykjanesbæ um næstu helgi.