Yfirburðir Keflavikur miklir gegn Fjölni
Íslandsmeistarar Keflavíkur unnu auðveldan sigur á Fjölni í Iceland Express deildinni í körfubolta kvenna í gærkvöldi. Lokatölur urðu 99-50. Í leikhlé var staðan 53-15.
Allir leikmenn Keflavíkur skoruðu í leiknum. Þegar hálf mínúta var eftir kallaði Jón Halldór þjálfari inn á völlinn og sagði sínum liðsmönnum að taka kerfi sem átti að enda á Hildi Björk Pálsdóttur, nýliða í Keflavíkurliðinu sem var ekki búin að skora í leiknum. Það gekk eftir og hún skoraði þriggja stiga körfu 20 sekúndum fyrir leikslok og fékk mikið fagn frá áhorfendapöllunum. Það er ekki á hverjum degi sem allir leikmenn skora stig í sama leiknum en aðeins vantaði herslumuninn að liðið kæmist yfir 100 stigin sem gerist ekki á hverjum degi.
Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði mest hjá liðinu eða 23 stig, Birna Valgarðsdóttir var með 18 stig, Ingibjörg Elva 12 stig. Allir aðrir leikmenn voru með undir tíu stigum.
Fjölnisstúlkur sáu aldrei til sólar í þessum leik en Birna Eiríksdóttir skoraði mest hjá þeim eða 14 stig. (vf.is)