Fréttir

Yfirflokkaþjálfari körfuknattleiksdeildar Keflavíkur
Karfa: Unglingaráð | 23. febrúar 2026

Yfirflokkaþjálfari körfuknattleiksdeildar Keflavíkur

Barna,- og unglingaráð körfuknattleiksdeildar Keflavíkur óskar eftir metnaðarfullum og öflugum yfirflokkaþjálfara til starfa fyrir tímabilið 2026-2027. 

Starfið felur í sér lykilhlutverk í faglegu starfi félagsins og nánu samstarfi við þjálfara, leikmenn og stjórn.

Helstu verkefni

  • Umsjón með þjálfun
  • Stýra stefnumótun og skipulagningu þjálfunarstarfs
  • Samhæfing og stuðningur við aðra þjálfara deildarinnar
  • Samskipti við stjórn, foreldra og aðra hagsmunaaðila
  • Utanumhald og stýringu á fjölliðamótum félagsins

Hæfniskröfur

  • Menntun og/eða reynsla í þjálfun körfuknattleiks
  • Leiðtogahæfileikar og góð samskiptahæfni
  • Skipulagshæfni og fagleg vinnubrögð
  • Metnaður og jákvætt viðhorf
  • Reynsla í stefnumótun og markmiðasetningu

Við bjóðum upp á

  • Spennandi starf í metnaðarfullu umhverfi
  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun félagsins

Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn og ferilskrá á karfa-yngri@keflavik.is fyrir 15. apríl 2026.

Hvetjum áhugasama um að sækja um.

Barna,- og unglingaráð körfuknattleiksdeildar Keflavíkur