Yfirlýsing frá stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur
Eins og fram kom í DV í dag, þá áttu sér stað óheppileg samskipti milli Keflvíkinga og Snæfellinga eftir lokaleikinn í úrslitunum s.l. laugardag. Reyndar var full fast kveðið að orði í DV þar sem keflvískir stuðningsmenn voru vændir um að ráðast að eldri borgurum úr röðum Snæfells eftir leikinn. Sú staðhæfing DV á ekki við rök að styðjast, er reyndar alveg út í hött, ekki sannleikanum samkvæm, og frábiðja stuðningsmenn Keflavíkur sér slíkan málflutning.
Hins vegar má það vera að einn eða annar stuðningsmaður hafi látið orð falla sem ekki eiga að heyrast og hörmum við það. Treystum því þó að fólk og stuðningsmenn allra liða og einkanlega stuðningsmenn Snæfells skilji að þegar tilfinningarnar eru í hámarki, þá er mönnum (og konum) stundum heitt í hamsi. Sumt er sagt sem betur væri látið ósagt, það gildir um stuðningsmenn flestra félaga, en yfirleitt vita menn (og konur) að slíkt gerist í hita leiks og að ekkert slæmt er meint.
Stjórn og stuðningsmenn harma það ef einhver er sár eftir þessi samskipti. Félögin tvö hafa átt skemmtileg og kappsfull samskipti á undanförnum dögum sem og fyrir ári síðan. Kappið er mikið og stuðningsmenn hvetja dátt og gagnrýna stundum dóma og geta verið neikvæðir í garð andstæðinga á stundum. En allir vita að þetta er partur af leiknum, menn (og konur) eru einungis að reyna allt sem þeir geta til að þeirra lið nái sem bestum árangri.
Þótt DV hafi kosið að gera samskipti stuðningsmanna þessara félaga að blaðamáli, þá er það okkar trú að ekki sé nauðsyn að ræða þessi mál á þeim vettvangi. Með þessari yfirlýsingu vill stjórnin leggja áherslu á að öll samskipti félaganna hafa verið góð og að keppnin hafi verið með ágætum. Við þökkum Snæfellingum fyrir drengilega keppni, jafnt leikmönnum sem stuðningsmönnum, þeir hafa flott lið og ákafa og góða stuðningsmenn og hlökkum við til að mæta þeim aftur á leikvellinum. Stuðningsmenn Keflavíkur vilja ítreka að þeir hafi verið hafðir fyrir rangri sök í DV í dag, en engu að síður vilja þeir láta hér staðar numið og ekkert frekar aðhafast.
Með von um að þessu máli ljúki nú í friðsemd og sátt félaganna og stuðningsmanna þeirra.
Stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur.