“Gömlu” skytturnar bestar þegar á reynir
Fyrsta umferð úrslitakeppninnar hefur boðið áhorfendum upp á fyrirtaks skemmtun, marga spennuleiki og þrjá oddaleiki, eitthvað sem ekki sést á ári hverju. Sú viðureign sem flestir áttu von á að yrði jöfnust, milli KR og Njarðvíkur, liðanna í 4ða og 5ta sæti, kláraðist í tveimur leikjum, en viðureignirnar sem margir töldu “öruggar”, Grindavík (1) – Hamar (8) og Keflavík (2) – ÍR (7) fóru í þrjá leiki. Frábært fyrir unnendur körfunnar á Íslandi og gjaldkera félaganna : )
Og hvað stendur upp úr? Jú, kannski það að þeir leikmenn sem talist geta “sigurvegarar” í fyrstu umferðinni eru “gömlu skytturnar”. Teitur fór á kostum gegn KR, ekki síst í seinni hálfleik fyrri leiksins, þar sem hann setti 24 stig án þess að brenna af skoti og smellti 5 þristum. Hebbi, sem stundum hefur mátt þola ósanngjarna gagnrýni, átti stórleik í seinni leiknum gegn Njarðvík, jafnvel þótt lið hans tapaði, setti 9 þrista úr 16 tilraunum og skoraði 35 stig. Gaui Skúla setti 15 þrista úr 26 tilraunum í leikjunum gegn ÍR og var kveikjan að stórkostlegum spretti Keflvíkinga í oddaleiknum. Og að síðustu, Keflvíkingurinn Kiddi “Gun” Friðriksson tók upp skammbyssuna og bombaði grimmt á Haukana með þeim afleiðingum að Tindastóll komst í undanúrslitin. Allir eru þessir heiðursmenn komnir á fertugsaldurinn, mislangt að vísu, og gaman að sjá að þeir láta verulega að sér kveða þegar mest á reynir. Frábærir leikmenn, allir fjórir.
Og hvað meira er athyglisvert? Jú, kannski sú staðreynd að KR-ingar voru ekki nógu góðir þegar á reyndi, þrátt fyrir að hafa lengst af vetri verið langt fyrir ofan Njarðvík í deildinni. Sigurhefðin er sterk í Njarðvík og KR-ingar virtust ekki geta skipulagt leik sinn af viti þegar mest lá við. Bekkurinn fullur af góðum leikmönnum sem ekki vissu hvert hlutverk sitt var og allir reyndu að senda á Darryl Flake, allt þar til Hebbi reyndi að blása lífi í liðið, en það dugði ekki, til þess var sigurvilji og skipulag Njarðvíking of sterkt. Enda engin tilviljun að flestir “spekingarnir” spáðu Njarðvík sigri og höfðu rétt fyrir sér.
Það er einnig athyglisvert að Grindavík og Keflavík misstu einbeitinguna í útileikjum sínum, en sýndu síðan klærnar svo um munaði í oddaleikjum. Og að síðustu er athyglisvert að Haukar, eina ferðina enn, náðu ekki að lyfta leik sínum á hærra plan þegar í úrslitakeppnina var komið. Þeir hafa oft verið góðir í deildarkeppninni, en einhverra hluta vegna ná þeir ekki að bæta sig þegar varnarleikurinn herðist og alvaran ræður ríkjum. Enda höfðu sumir sagt að þegar í úrslitakeppnina kemur, þá er ekki nóg að hafa einn súper-leikmenn, það þarf meira til. Tindastóll átti leynivopn, Kiddi Gun hafði sparað sig verulega í deildarkeppninni, en Haukarnir áttu engin tromp í erminni og einstaklingsframtakið dugði ekki, rétt eins og Reynir þjálfari þeirra Kristinsson sagði í viðtali.
Nú færist aukið fjör í leikinn. Heimasíðan mun spá í spilin á næstu dögum en hún getur þó sagt það strax að líklegt verði að telja að Grindavík sigri Tindastól. Ekki er jafn auðvelt að spá fyrir um Keflavík – Njarðvík, þó vissulega hafi heimasíðan trú á sínum mönnum og spái Keflavíkursigri. Vonandi þarf marga leiki til að úrslit fáist, því þannig er fjörið mest – ÁFRAM KEFLAVÍK!