“SWEEP 2003”: Keflavík náði fram hefndum frá því í fyrra og er komið í úrslit
Leikurinn í gærkveldi var í járnum í fyrri hálfleik og aðeins skildu 6 stig liðin að eftir annan leikhluta, 42-36. En þá brá Sigurður þjálfari á það snjallræði að hefja seinni hálfleikinn með því að stilla upp 2-3 svæðisvörn með þá Jón Hafsteinsson og Sverrir Þór í bakvarðarstöðum. Og önnur eins varnarlína hefur vart sést. Þeir drengir fóru hamförum í varnarleiknum og Njarðvíkingar komust hvorki lönd né strönd. Og þótt þessir tveir skoruðu aðeins 11 stig samtals lögðu þeir grunninn að glæstum sigri Keflavíkurliðsins sem á nokkurra mínútna kafla náði 20 stiga forskoti sem gerði út um leikinn. Það er ekki alvanalegt að sjá Jonna í bakvarðahlutverki og Magnús Gunnarsson, sem er mun lágvaxnari, í framherjahlutverki fyrir aftan, en þetta herbragð heppnaðist algerlega.
Eftir að vörnin hafði farið á kostum í þriðja leikhluta var “reynslan”, Falur, Gaui og Gunni Einars, sett inná í síðasta leikhlutanum og þeir, ásamt Ed og Damon, gerðu engin mistök og sigldu heim glætum yfirburðarsigri, 105-80, í þriðja og síðasta undanúrslitaleik Keflavíkur og Njarðvíkur. 3-0 “Sweep” náðist þar með í fyrsta skiptið gegn Njarðvík og með því náði Keflavíkurliðið að hefna fyrir samskonar ósigur frá því í fyrra þegar Njarðvík vann 3-0 í úrslitunum.
Allt útlit var fyrir jafnan og spennandi leik í fyrri hálfleik. Friðrik Stefánsson hóf leikinn af krafti og sterk vörn gestanna orsakaði vandræðagang í sóknarleik okkar manna. En Maggi Gunnars og Gaui Skúla náðu þó 5 þristum sem voru mikilvægt innlegg í stigaskorunina í fyrri hálfleik. Ed og Damon voru frekar rólegir og áttu erfitt uppdráttar.
En eins og áður sagði þá small vörnin heldur betur í gírinn í upphafi seinni hálfleiks og það gerði gæfumuninn. Njarðvíkingar áttu í erfiðleikum með að senda boltann sín á milli og komust ekki í færi. Teitur var hvíldur á þessum kafla og gerði það illt verra fyrir gestina. Okkar menn nýttu mistökin vel og þeir Ed og Damon tóku að skora grimmt úr hraðupphlaupum. Forystan sem skapaðist á þessum tíma dugði út leikinn, þrátt fyrir að hún hafi dottið niður í 16 stig þegar um sex mínútur lifðu leiks. En öflugur sóknarleikur Fals og Guðjóns gerði það að verkum að munurinn jókst jafnharðan. Við bættust sirkustroðslur Eds og sú síðasta sem kom eftir sendingu frá Damon var ein sú svakalegasta sem sést hefur í Sláturhúsinu, sem enn og aftur bar nafn með rentu.
Í úrslitakeppninn hefur Keflavíkurliðið nú unnið heimaleiki sína með að meðaltali um 25 stiga mun og alls vannst einvígið gegn Njarðvík með 74 stiga mun sem er harla óvenjulegt þegar þessi tvö félög eiga í hlut.
Keflavík átti góðan leik í gærkvöld og nú hvíldi ekki jafn mikið á herðum Eds og Damons eins og í síðasta leik. Þegar hefur verið rætt um frábæran varnarleik Jonna og Sverris Þórs, en við það má bæta glæsilegri frammistöðu Magnúsar Gunnarsson sem fór á kostum í sóknarleiknum og skoraði 20 stig. Guðjón, 15 stig, brenndi ekki af skoti í leiknum og Falur nýtti reynslu sína og hraða til að stjórna leiknum og skapa færi handa félögum sínum. Ed setti 21 stig og hirti 16 fráköst og Damon skoraði 25 stig. Leikmennirnir svöruðu kallinu en maður leiksins í þetta skiptið var Sigurður þjálfari, en hann tók sénsinn og gerði breytingar á varnarleiknum sem gerðu útslagið í leiknum.
Njarðvíkingar urðu að játa sig sigraða gegn betra liði í þetta skipið. Þeir byrjuðu af krafti en höfðu einfaldlega ekki á jafn góðu liði að skipa þetta árið. Teitur var þó ódrepandi að vanda og setti t.d. sex þrista í leiknum og neitaði að gefast upp. Friðrik og Páll voru ágætir, en Harris var lánlítill í skotum sínum. Þeir börðust hetjulega og við þökkum þeim fyrir drengilega keppni.
Nú bíðum við þolinmóðir eftir úrslitum úr viðureign Grindavíkur og Tindastóls sem gæti allt eins tekið tvo leiki til viðbótar. Við þökkum einnig okkar stuðningsmönnum sem fjölmenntu á leikinn og létu vel í sér heyra, með stuðningsmannasveitina og “litlu trommuleikarana” í fararbroddi. - ÁFRAM KEFLAVÍK!