Fréttir

Körfubolti | 7. mars 2003

”Einkashow” í Keflavík: 3ja stiga sýning hjá Magnúsi Gunnarssyni þegar KEF-KARLAR lögðu Snæfell 108-83 í síðustu umferðinni

Leikurinn í gærkvöldi hafði í raun enga þýðingu fyrir Keflavíkurliðið en þess meiri fyrir Snæfell, því þeir voru í bullandi baráttu við Breiðablik og Hamar um að tryggja sér síðasta sætið inn í úrslitakeppnina.

Þýðingarleysið sást greinilega á Keflvíkingum, en erfiðara var að greina mikilvægi leiksins hjá Snæfellingum sem ekki virtust hafa trú á að þeir gætu sigrað. Kannski að stórt tap í Bikarúrslitunum hafi orsakað vanmáttartilfinningu hjá þeim.

Óhætt er að segja að leikurinn hafi verið frekar slitróttur mest allan tímann. Guðjón Skúlason var þó ferskur í upphafi og smellti fjórum þristum á stuttum tíma í fyrsta leikhluta. En jafnræði var með liðunum og í hálfleik var munurinn aðeins 6 stig, 55-49.

Þriðji leikhluti bauð upp á mikið af því sama, og helst voru það “alley-oop” troðslur Edda Saunders sem glöddu áhorfendur sem voru fáir í þetta skiptið. Munurinn á liðunum var um 7-10 stig mest allan leikhlutann en ekkert í fari liðanna benti til þess að Snæfell myndi gera harða atlögu að sigrinum.

Og þá kom að Magnúsar þætti Gunnarssonar. Drengurinn fór í ham og á sex mínútna kafla setti hann niður 20 stig – sex þristar og eitt stökkskot úr horninu. Hann brenndi ekki af skoti á þessum kafla og engu líkara var en að Maggi væri í dáleiðslu, slík voru tilþrifin. 

Með þessum kafla byggðist upp örugg forysta sem minnkaði ekki þótt Damon og Ed væru utan vallar. Arnar var sprækur og Jonni átti öll fráköst. Eins tók Gunnar Einarsson góðan sprett undir lokin og smellti nokkrum körfum. Damon var aumur í læri og hvíldi allan seinni hálfleikinn, en það kom ekki að sök.

Með þessum leik lauk Deildarkeppninni og hafnaði Keflavík í öðru sæti með 34 stig líkt og Grindavík sem varð Deildarmeistari. Snæfellingar léku hins vegar sinn síðasta leik á þessari leiktíð þar sem Hamarsmenn gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Grindavík og skutust þannig upp í áttunda sætið.

Næst á dagskrá er úrslitakeppnin og okkar mótherjar verða ÍR-ingar sem lutu í lægra haldi gegn Tindastóli í Seljaskólanum í gærkvöldi.