Skráning iðkenda
- Allir iðkendur hjá Keflavík þurfa að vera skráðir.
- Forráðamenn skrá sín börn inn í gegnum Sportabler skráningakerfið.
- Skráningar fara fram í gegnum Sportabler sem hægt er að nálgast á heimasíðu Keflavíkur eða á slóðinni Sportabler
- Ef iðkandi byrjar á miðju tímabili þá þarf að senda póst á hjordis@keflavik.is og fá aðstoð við skráningu og endurreiknun á æfingagjöld.
- Foreldrar þurfa að sækja sér Sportabler appið.
Verðskrá veturinn 2024-2025 - Væntaleg á næstunni
Minnibolti 1-2.bekkur |
72.990,- |
Minnibolti 3-4.bekkur |
84.570,- |
Minnibolti 5-6.bekkur |
96.500,- |
7-8.flokkur |
108.000,- |
9.flokkur og eldri |
112.500,- |
Greiðslur
- Kreditkort - hægt að skipta greiðslum niður á 1 – 9 greiðslur. Umsýslugjald leggst á skiptingu á korti sem er 2% af heildargjaldi
- Greiðsluseðill -skipt niður á 1-9 greiðslur. Athugið að greiðsluseðlar eru sendir í gegnum Motus og leggst seðilgjald á hvern reikning auk þess sem vextir reiknast á greiðsluseðla séu þeir greiddir eftir gjalddaga.
- Greiðslur æfingagjalda eru forsenda þess að iðkandi megi taka þátt í æfingum og mótum á vegum Keflavíkur.
Iðkandi hættir:
- Þegar iðkandi hættir skal senda tilkynningu í tölvupósti á hjordis@keflavik.is þar sem fram kemur nafn og kennitala iðkandans
- Æfingagjöld falla niður frá næstu mánaðamótum eftir að forráðamaður hefur tilkynnt með tölvupósti að iðkandi sé hættur. Ekki er nóg að láta þjálfara vita.
- Æfingagjöld fást ekki endurgreidd afturvirkt.
Hvatagreiðslur
- Hvatagreiðslur Reykjanesbæjar eru rafrænar frá og með áramótum 2021 og hafa forráðamenn sem skrá iðkendur á þessu ári val um að haka við í skráningarferlinu um að nota hvatagreiðsluna til lækkunar æfingargjaldinu. Það er á ábyrgð forráðamanna að nýta sér hvatagreiðslurnar.
- Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Reykjanesbæjar - athugið að hvatagreiðslur fást ekki endurgreiddar þegar búið er að ráðstafa þeim. Hvatagreiðslur/Incentive payments | Upplýsingavefur sveitarfélagsins Reykjanesbæjar (reykjanesbaer.is)
- Hvatagreiðsla fyrir árið 2023 er 45.000 kr. og er hún alltaf tengd skráningum hverju sinni.