Sumaræfingar í körfu - Æfingatafla
Sumaræfingar í körfu - Æfingatafla
Sumaræfingar á vegum Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefjast í fyrstu viku júní með afreksæfingum fyrir 8.-10.bekk. Mánudaginn 12. júní hefjast svo æfingar fyrir 3.-7. bekk.
Frá og með 13. júní mun deildin síðan bjóða upp á körfuboltaskóla fyrir 1. og 2. bekk sem og leikskólahóp.
Sumaræfingarnar eru frábær valkostur fyrir þá sem vilja taka framförum í sumar og kjörið tækifæri fyrir nýja iðkendur að prófa skemmtilegustu íþrótt í heimi.
Allar æfingar Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur eru jafnt fyrir drengi sem stúlkur.
8.-10.bekkur:
- Afreksæfingar verða mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9.00-12.00, allir velkomnir.
- Frítt er á æfingarnar og þjálfari er Hörður Axel Vilhjálmsson.
3.-7.bekkur:
- Æft verður í tveimur hópum, „3.-4. bekkur“ og „5.-7.bekkur“
- Æft verður 3 í viku, mánudag, þriðjudag og fimmtudag í 6 vikur.
- Æfingagjald fyrir tímabilið verður 7.000 kr.
- Kolbeinn Skagfjörð ásamt öðrum þjálfurum munu sjá um æfingarnar.
1.-2.bekkur og leikskólahópur:
- Æft verður í tveimur hópum, „1.-2. bekkur“ og „leikskólahópur“
- Æft verður 2 í viku, þriðjudag og fimmtudag í 6 vikur.
- Æfingagjald fyrir tímabilið verður 5.000 kr.
- Kristjana Eir Jónsdóttir mun sjá um körfuboltaskólann.
ÆFINGATÖFLU SUMARÆFINGANNA MÁ SJÁ HÉR
Barna- og unglingaráð KKDK