Hörður Axel semur við Keflavík
Landsliðsmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson hefur samið við körfuknattleiksdeild Keflavíkur til næstu fjögurra ára. Samningur þessi var undirritaður af Herði Axel og Ingva Þór Hákonarsyni, formanni KKDK í félagsheimili Keflavíkur fyrr í kvöld.