Fréttir

Tap í fyrsta leik - Stuðnings óskað frá öllum Keflvíkingum á sunnudag
Karfa: Karlar | 22. mars 2013

Tap í fyrsta leik - Stuðnings óskað frá öllum Keflvíkingum á sunnudag

Keflavík tapaði í gær fyrsta leiknum í rimmunni við Stjörnuna í 8-liða úrslitum Domino´s deildarinnar í körfubolta. Eftir frábæran 1. leikhluta af hálfu Keflvíkinga, þar sem vörnin var aðalsmerki liðsins, jafnaðist leikurinn nokkuð og slaknaði á vörninni. Fór það svo að Stjarnan leiddi með fjórum stigum í hálfleik, 54-50.

Valur Orri kominn í stakkinn og tilbúinn í orrustu - Stutt viðtal við Val Orra
Karfa: Karlar | 21. mars 2013

Valur Orri kominn í stakkinn og tilbúinn í orrustu - Stutt viðtal við Val Orra

Keflavík mætir Stjörnunni í kvöld kl. 19.15 í Garðabæ í 8-liða úrslitum Domino´s deildarinnar, eins og allir ættu að þekkja. Það styttist því í þessa örrustu sem flestir telja að verði mjög spennandi og geti farið hvernig sem er. Valur Orri Valsson, leikstjórnandi Keflavíkur, virðist tilbúinn að heyja mikla baráttu en við lögðum fyrir hann nokkrar laufléttar spurningar rétt í þessu.

Bekkurinn þarf að koma inn með meiri baráttu - Stutt viðtal við Almar Stefán
Karfa: Karlar | 21. mars 2013

Bekkurinn þarf að koma inn með meiri baráttu - Stutt viðtal við Almar Stefán

Í kvöld kl. 19.15 fara Keflavíkurpiltar í Garðabæinn þar sem þeir mæta Stjörnunni í 8-liða úrslitum Domino´s deildarinnar. Leikmenn liðsins eru orðnir vel gíraðir fyrir leikinn, hvort sem þeir hefja leik á parketinu eða á bekknum. Almar Stefán Guðbrandsson, miðherji Keflavíkur, var fenginn til að svara örfáum spurningum í aðdraganda rimmunnar milli Keflavíkur og Stjörnunnar sem allir bíða eftir.

Ekkert fæst gefins í úrslitakeppninni - Stutt viðtal við Michael Craion
Karfa: Karlar | 20. mars 2013

Ekkert fæst gefins í úrslitakeppninni - Stutt viðtal við Michael Craion

Keflavík mætir Stjörnunni í 8-liða úrslitum Domino´s deildarinnar fimmtudaginn 21. mars en leikurinn serm er í Garðabæ hefst kl. 19.15. Michael Craion leikmaður Keflavíkur hefur sannarlega staðið fyrir sínu á þessu tímabili og var verðlaunaður fyrir framlag sitt á dögunum þegar hann var valinn besti leikmaður deildarinnar fyrir umferðir 12-22.

Stuðningsmenn Keflavíkur hittast í Toyotahöllinni fyrir leikinn á fimmtudag
Karfa: Karlar | 19. mars 2013

Stuðningsmenn Keflavíkur hittast í Toyotahöllinni fyrir leikinn á fimmtudag

8-liða úrslitin hefjast á fimmtudag þegar Keflavíkurpiltar mæta Stjörnunni í Ásgarði kl. 19.15. Keflavík hefur ákveðið að bjóða stuðningsmönnum sínum upp á rútuferð í Garðabæ þó stutt sé að fara og koma þannig til móts við óskir þess efnis. Munu stuðningsmenn liðsins hittast í Toyotahöllinni kl. 17.00 (VIP herbergi) og verður farið af stað um kl. 18.00 í Garðabæ.

Keflavíkurpiltar stilla saman strengi fyrir 8-liða úrslit
Karfa: Karlar | 19. mars 2013

Keflavíkurpiltar stilla saman strengi fyrir 8-liða úrslit

Líkt og allir körfuboltaáhugamenn þekkja hefjast 8-liða úrslit Domino´s deildarinnar á fimmtudaginn 21. mars. Keflvíkingar mæta þar Stjörnunni en fyrsti leikurinn er kl. 19.15 í Garðabæ. Þessa dagana eru Keflvíkingar að stilla saman strengi sína og eru æfingar liðsins farnar að bera þess glögg merki. Strákarnir gerðu sér glaðan dag í gær og fóru saman í bíó í boði Sambíóanna í Keflavík.

Magnús Þór heiðraður fyrir sigurleikinn gegn ÍR
Karfa: Karlar | 18. mars 2013

Magnús Þór heiðraður fyrir sigurleikinn gegn ÍR

Keflvíkingar enda í 5. sæti í Domino´s deild karla annað árið í röð eftir sigur á ÍR í Toyotahöllinni í gær, 87-78. Leikurinn var spennandi og gáfu ÍR-ingar allt sem þeir gátu í leikinn. Heimamenn byrjuðu leikinn virkilega vel en líkt og einkennt hefur liðið á köflum í vetur minnkaði flæðið í sóknarleiknum fljótlega og úr varð spennandi leikur.